Umsókn um námslán:
Sótt er um námslán á sérstökum rafrænum eyðublöðum. Leiðbeiningar um útfyllingu umsóknar um námslán eru hér. Umsóknareyðublöðin þurfa að berast fyrir: 30. september 2007 vegna aðstoðar til áramóta, 31. janúar 2008 vegna aðstoðar eftir áramót fram að sumri og 31. maí 2008 vegna sumarlána.
Frá því að umsókn um námslán berst til LÍN og þar til lán er greitt út í lok annar þurfa nemendur að standa skil á eftirfarandi upplýsingum.- Staðfesting á skólavist: Staðfestinguna verða þeir námsmenn á Íslandi að senda sem borga há skólagjöld og einnig námsmenn erlendis sem eru að hefja nýtt nám. Umsóknin tekur ekki formlega gildi fyrr en slík staðfesting hefur borist sjóðnum.
- Útreikningur á láni: LÍN sendir „Lánsáætlun“ til námsmanna / umboðsmanna og staðfestir þannig gildar umsóknir. Fyrirframgreiðsla skólagjalda hefst til þeirra sem eiga rétt á því.
- Skuldabréf: Þeir sem eru að sækja um námslán í fyrsta sinn eða hafa gert meira en árshlé á námi sínu fá sent skuldabréf til undirritunar.
- Enskumælandi lönd: Senda þarf til LÍN upplýsingar um skólagjöld og styrk/styrkleysi fyrir hverja önn eða allt námsárið
- Endanleg tekjuáætlun: Staðfesta verður tekjuáætlun áður en útborgun haustlána fer
- Námsárangur: Námslán eru afgreidd þegar námsárangur hefur borist. Skólar á Íslandi senda árangurinn beint til LÍN, en námsmenn erlendis verða að sjá um það sjálfir. Þeir sem ekki taka próf á miðjum vetri verða að senda staðfestingu á námsástundun.
- Útborgun láns: Lágmarksnámsárangur er 75% af fullu námi. Greiðslan er lögð inn á bankareikning námsmanns.
- Skattframtal: Allir lánþegar verða að staðfesta endanlegar tekjur með afriti af skattframtali. Námsmenn á Norðurlöndunum verða einnig að senda afrit af álagningarseðlum. Í Danmörku „årsopgørelse“, í Noregi „skatteoppgjör“ og Svíþjóð „slutlig skatsedel“. Barnlausir einstaklingar á Íslandi í leiguhúsnæði verða að skila leigumiða (RSK 2.02).
Á eftirfarandi slóð má nálgast helstu atriðin í úthlutunarreglur LÍN: http://lin.is/Namslan/utlan/utskyringar.html
Upphæð námslánaUpphæð námslána fer eftir fjölskyldu- og heimilisaðstæðum námsmanns. Námsmaður sem býr í leiguhúsnæði hefur t.d rétt á hærri námslánum en námsmaður sem býr í foreldrahúsum. Sjá framfærslutöflu http://lin.is/Namslan/utlan/framfaerslutafla.html
Mitt svæði námsmannaMitt svæði er einkasvæði námsmanns hjá LÍN. Þar er m.a. að finna umsóknir um námslán, jöfnunarstyrk og frestun á afborgun námslána. Þar geta námsmenn og greiðendur einnig fylgst með stöðu sinna mála á persónulegum síðum. Sjá nánar: http://lin.is/mitt_svaedi.html
TIL BAKA
