Eitt aðdáunarverðasta afrek Stúdentaráðs á síðastliðnu starfsári hljóta að vera sumarannirnar sem nemendum Háskólans stóðu til boða síðastliðið sumar. Fyrir tilstilli þrýstings frá ráðinu gagnvart yfirvöldum var fjármagni hleypt í þetta verkefni og gátu því 1000 nemendur stundað nám og halað þannig inn dýrmætar einingar yfir sumartímann. Þessir stúdentar hefðu að öðrum kosti líklegast verið atvinnulausir, enda atvinnuhorfur í þjóðfélaginu heldur daprar og sér ekki fram á að þær batni í náinni framtíð.
Sumarannirnar eru ofurskýrt dæmi um bein viðbrögð Stúdentaráðs við bágu þjóðfélagsástandi – þar sem ráðið greip til beinna aðgerða til varnar stúdentum. Þannig sá stúdentaráð þeim beinlínis fyrir tekjum og námsframboði yfir sumartímann og forðaði frá aðgerða- og vonleysi. Þetta góða dæmi hlýtur að draga úr þeirri óánægju sem stundum hefur verið látin í ljós um starfsemi ráðsins. Jafnframt sýnir þetta að Stúdentaráð, undir stjórn Vöku, hikar ekki við að ráðast í framkvæmdir, enda hefur það alltaf verið stefna félagsins að beita sér ekki aðeins sem þrýstiafli heldur einnig sem virku framkvæmdarafli. Við gerum góðar hugmyndir að veruleika og finnum lausnir á þeim vanda sem steðjar að stúdentum hverju sinni. Þetta sýnir einnig að starfssvið ráðsins er hvergi nærri jafn afmarkað og margir vilja meina; það hefur vald til að grípa til fjölbreyttra aðgerða til að bæta hag nemenda og takmarkast það þá einungis við ímyndunarafl og hugmyndaauðgi nemenda og fulltrúa þeirra innan ráðsins.
Stúdentaráð beitti beinskeyttum aðferðum við að gera þessa hugmynd að raunveruleika – bréf var sent á alla ráðherra fyrir ríkisstjórnarfund þar sem umræða um sumarannir var á dagskrá. Í bréfinu kom fram krafa um að þúsundum námsmanna sem stóðu frammi fyrir atvinnuleysi yrði gefinn kostur á að stunda nám yfir sumartímann og fá um leið sumarlán hjá LÍN. Þessi krafa var rökstudd með könnun sem SHÍ lét framkvæma til að kanna atvinnuhorfur stúdenta. Niðurstöður kannanarinnar voru vægast sagt sláandi; 13.000 námsmenn sáu fram á atvinnuleysi um sumarið. Einnig benti Stúdentaráð á þá staðreynd að atvinnuleysisbætur, sem flestir þessara stúdenta myndu væntanlega sækja um, væru 50% hærri en grunnframfærsla námslána, og hinn kosturinn sem byðist þessum hópi fólks, fjárhagsaðstoð frá sveitarfélagi, væri 15%-20% hærri. Það myndi því kosta sveitarfélög tæpa 5 milljarða að leggja fram fjárhagsaðstoð yfir sumartímann. Það þurfti því engan snilling til að koma auga á að mun hagkvæmara væri fyrir ríki og sveitarfélög að bjóða þessa lausn á vandanum og finna fjármagn til að kosta sumarannir, sem yrði svo endurgreitt með tímanum eins og önnur lán. Þannig var bent á þá þjóðhagslegu hagkvæmni sem fylgdi þessu fyrirkomulagi.
Skýrar, einfaldar og áhrifaríkar aðferðir á borð við þessar eru til fyrirmyndar og sé þeim beitt hámarkast virkni ráðsins. Að fólkið sem er þar innanborðs hugsi í lausnum og hafi þor og dug til að framkvæma skiptir höfuðmáli, eins og sást glögglega í þessu máli.
Vaka er staðráðin í að koma aftur á sumarönnum næstkomandi sumar og auka þá framboð námskeiða og fjölbreytileika þeirra. Búið að skilgreina vandann og finna lausn, hrinda henni framkvæmd og þá er ekkert eftir nema að fínpússa. Það er þúsund sinnum betra að drífa í hlutunum í stað þess að sitja með hendur í kjöltu og kvörtunartón í röddu. Hugsum í lausnum – það er léttara
Guðrún Sóley Gestsdóttir,
1. sæti á framboðslista Vöku til Háskólaráðs
TIL BAKA
