Mánudaginn 2. mars síðastliðinn var Jóhann Már Helgason ráðinn í starf framkvæmdastjóra Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Í ráðningarferlinu vék Hildur Björnsdóttir, formaður Stúdentaráðs, til hliðar og óskaði eftir varamanni vegna tengsla sinna við Jóhann – hún kom því ekki með nokkrum hætti að ráðningunni. Af þremur vel hæfum umsækjendum var Jóhann Már talinn hæfastur af eftirfarandi ástæðum:
- Hann var eini umsækjandinn sem uppfyllti allar þær hæfniskröfur sem óskað var eftir í auglýsingu til framkvæmdastjóra SHÍ.
- Hann gat hafið störf strax og var tilbúinn til að vinna mikla yfirvinnu launalaust.
- Hann hefur góða bókhaldsþekkingu og starfaði áður sem framkvæmdastjóri.
- Hann hefur afburða reynslu af störfum SHÍ en Jóhann hefur setið í Stúdentaráði, hagsmunanefnd, samgönguráði, stórhátíðarnefnd, stjórn stúdentasjóðs, stjórn Politica og hefur unnið náið með fyrrum framkvæmdastjóra SHÍ.
Framundan eru miklir baráttutímar fyrir stúdenta. Alls staðar er skorið niður, dregið saman og þrengt að hag stúdenta. Stúdentaráð Háskóla Íslands þarf að standa dyggilega vörð um þá hagsmuni sem máli skipta – hagsmuni stúdenta. Á tímum sem þessum þarf Stúdentaráð að beina kröftum sínum og athygli að málum á borð við bætt kjör hjá Lánasjóðnum, sumarannir við Háskóla Íslands og lausnir á atvinnuvanda stúdenta.
Tíminn er naumur og skal honum ekki sóað í lágkúru – hagsmunir stúdenta eru í húfi!
TIL BAKA
